Hefur þú prófað 4 some;)?

Trylltar túttur

11.01.2008 17:35:16 / 4some

Henný afmælisbarn!

Til hamingju með daginn Henný okkar!:haha:

Hafðu það gott í dag og ég tala nú ekki um kvöldið!!;):haha:



-love..your BFF:*


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 01:36:22 / Rachel Green

næsta helgi !

jæja, þar sem Högna er að passa húsið hjá ömmu sinni og afa þá ætlum við 4-some + stubbur:) að hafa kósí annaðhvort á föst eða laug og svo gista þar saman :D getum keypt buns af nammi, fitnað um nokkur kíló og leigt góða mynd. hvað segiði um það stelpur?

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 10:40:56 / 4some

Begga 19 ára ;)

Háskólapían okkar á afmæli í dag :D !! Til hamingju með það elsku Beggan okkar og hafðu það ýkt gott í dag !!

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 13:05:10 / 4some

20.okt

Hey girls!

Í tilefni af afmælinu mínu (12. okt :haha: ) var ég að spá hvort þið væruð til í að taka frá lau. 20. okt??

Hvernig hentar það?

I'm home alone og svona...getum eldað og gert eitthvað skemmtilegt!8) Þannig að 20. okt frá svona 18?? komist þið þá ?


Eða komist þið núna á laugardaginn 13. okt. COMMENT PLEASE!


ætla svo að blogga smá bráðum! allt að koma:P



Kv. Berglind:D

» 6 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 13:38:33 / Rachel Green

dauð síða?

Stelpur! skamm, fariði að blogga þið hafið nóg að segja frá :P

í dag er Dagur Hrafn orðin 2 mánaða ! vá fljótt að líða. Við byrjum í ungbarnasundi eftir 3 vikur :) svo skólinn líka, eða sagan og félagsfræðin sem er eftir ! ekki skemmtilegustu fögin. En ég verð fegin þegar þetta er búið að þá tekur hálfs árs frí og svo bara HR !

það er svona frekar skrítið að vera alltaf heima og vera ekki að gera neitt nema smá fjarmán. En stelpurnar eru duglegar að láta heyra í sér :)       btw. hvað á að gera í kvöld stelpur?

en já, ekki meira í bili, erum að fara í göngutúr :)!


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 21:16:45 / Rachel Green

stelpur.. ekki þessa leti!

iss stelpur.. fariði nú að blogga um ferðirnar ykkar.. ég er að blogga og ég er búin að vera heima í nokkra mánuði ! ;) komiði með slúðrið.

 btw.. ég segi að það sé Vegamót næstu helgi :) ! eruði ekki game í það?


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 20:57:56 / Rachel Green

...

jæja, þá eru allar stelpurnar úti. Henný og Begga í Danmörku og Högna í útskriftaferð á Tenerife.. lucky bastards! Eins gott að þær kaupi eitthvað flott handa mér ;)! neinei, segi svona.

En já, ég skírði í Dag.. Litli kútur fekk nafnið Dagur Hrafn og er vonandi ánægður með það :) þannig að heimasíðan hans er ekki lengur onefndur heldur dagurhrafn.barnaland.is

Voða lítið annars að frétta.. við erum enþá bara oftast heima en það fer að breytast. Erum samt byrjuð að fara útí göngutúr í vagninum.

 

 

 



» 11 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 20:14:35 / Rachel Green

jæja, þá kom hann :)

föstudaginn 20. júlí fór pabbi með mig uppá spítala kl. 12 og svo kom mamma og Magga (systir) til mín. Litli ákvað samt ekki að láta sjá sig fyrr en kl. 2:37 um nóttina. Hann var rúmar 17 merkur og 53 cm. ekkert smá stór! Núna er hann orðin viku gamall í dag :) Það gengur bara mjög vel og við erum náttúrulega bara heima svona fyrst. Fyrstu 3 dagana stoppuðu ekki heimsóknirnar enda fekk litli gutti marga pakka.

Hérna er svo ein mynd af honum eftir fyrsta baðið sitt :)

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 18:43:50 / Henný Hottí

LOKSINS!!!

Jæja vildi bara láta vita að litli prinsinn okkar kom loksins í heiminn núna rétt fyrir 3 í nótt :) Stór strákur eða rúmar 17 merkur og 53cm! Rakeli okkar heilsast bara vel og ætlum við að fara að kíkja á þau núna í kvöld:D Mamman bloggar svo betur um þetta allt þegar hún kemur heim :)

» 22 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 15:25:38 / Begga Besta

..

18. júli !!!! :O dagurinn sem við erum búnar að bíða eftir alveg í rooooosalega langa 9 mánuði!!

Rakel ?? ekkert að gerast ?:D


annars voða lítið að frétta af okkur hinum...bara vinna og safna pening...aldeilis dýrt að fara 2 svar til útlanda og eiga bíl:/
var að setja inn nokkrar myndir frá seinustu helgi..það var rosa gaman.

Það verður líka geggjað á föstudaginn haa;) maður verður ekkert smá skemmdur eftir þetta sumar;)

Berglind


» 12 hafa sagt sína skoðun

14.07.2007 13:56:43 / Rachel Green

hanga heima !

já, maður gerir ekki mikið núna nema hanga heima og fara uppá spítala til skiptis. Hef reyndar skotist á útsölu í smáralind og fæ þá vinkonurnar til að máta til að athuga hvort það sé flott :P hehe..

 

en já, þar sem það er ekkert að frétta þá hefur maður ekki mikið annað að segja frá :P Blogga svo bara þegar ég hef stærri fréttr :P


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 11:11:45 / 4some

jááá..

jæja stelpur hva segiði??

mér leeeeiðist!  Er að vinna og það er eitthvað rosa rólegt hjá okkur...

heyrðu svo er bara djamm í kvöld haa!!:D við stelpurnar í vinnunni ætlum að fara út að borða saman fyrst á Vegmót og svo heim til Bellu og svo ætli við endum ekki í bænum hehe:P 

S5004197 copy
myndir 002


KV. Berglind:haha:


» 19 hafa sagt sína skoðun

30.06.2007 19:56:24 / Rachel Green

biðin langa

jæja.. þá fer að koma að þessu:) bara 2 vikur og 4 dagar eftir! er búin að vera dugleg að taka til hérna og setja lítið rúm inn til mín og svona :)! versta er að maður er svo latur og þreyttur að maður nennir ekki neitt, vill bara vera heima. Þar af leiðandi hitti ég stelpurnar ekki mikið en það breytist. Þær ákváðu að skella sé í útilegu í dag og koma á morgun.. koma örugglega svo myndir frá því á næstunni.

 

En já, ég ákvað bara aðeins að setja smá blogg inn fyrst það er ekki búið að gera það lengi og ég er búin að vera svo einangruð seinustu vikur. En, svo blogga ég þegar stelpurnar eru búnar að eignast lítinn frænda:)

 

later.... Rakel ;) 


» 13 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 10:03:19 / Begga Besta

helgin

halló!

jæja var að setja inn myndir frá  föstudeginum...laugardagurinn fer alveg að koma inn. 

Á föstudaginn var semsagt staffadjamm hjá löggunni.  Byrjuðum á að mæta í Sundahöfn kl 7 og fórum í bát útí Viðey. 
Borðuðum þar og fórum í leiki og svona skemmtilegt og var svo haldið niðrí bæ. Ég og högna náðum reyndar aldrei þangað ...högna og hlynur voru eitthvað löt:)  Var svo sniðug að gleyma myndavélinni og símanum og öllu í bílnum á höfninni svo það vrou ekki teknar fleiri myndir það kvöld

 


Á laugardaginn byrjuðum við hjá ingu rós og héldum svo í bæinn þar sem fólk var mjööög skrautlegt...rosa gaman;) myndir koma bráðum
                                                                                     

Berglind                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                       

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 09:39:21 / Begga Besta

krít o.fl

myndirnar frá krít eru að koma svona hægt og rólega inn... maður þarf að ritskoða þetta fyrst og svona;)

en semsagt ég fór til Krítar 26-2 júní í útskriftarferð og það var rooooooosalegt stuð!!

vorum bara 35 í þessari ferð en það var bara fínt útaf við náðum að halda hópinn alveg rosa vel og fórum næstum á hverju kvöldi öll saman útað borða....allavegna vikuna sem ég var.
en í stuttu máli hvað við gerðum fyrstu vikuna ...er svona að reyna að púsla þessu saman út frá myndum..þetta rennur allt saman :D


1. dagur
Lentum seint á krít og fórum bara á hótelið og fengum geeeeðveikt spaghetti carbonara! svo minnir mig að við kíktum eitthvað niðrá strönd...rosa flottar stjörnur þar.


2 dagur.
Vöknuðum og fengum okkur að borða á andreas. Fórum svo á ströndina..þar sögðu aðrar stelpur okkur frá flottum helli sem var þarna og við (ég,lára, kata og gunnhildur) bara já kúl og ætluðum að tékka á honum..svo vorum við búnar að standa í honum í svona 10 mín bara að skoða útskýnið og taka myndir og svona þegar Katrín langar eitthvað að kíkja innar inn í hellinn og horfir svona inní myrkrið...svo var hún bara: uuu stelpur það er einhver kall þarna !:o
við bar8|a ha og litum allar við ..kemur þá ekki gaur bara í skóm sem var að bara rúnka sér og labbar bara til okkar og ætlaði bara að nauðga okkur á staðnum eða eitthvað!!! gunnhildur bara HANN ER AÐ RÚNKA SÉR !!! HLAUPUM!! hlupum svo öskrandi niðrá stönd og náðum í dótið okkur og fórum! alveg í sjokki...samt alveg i hláturskasti útaf þetta var mjög fyndið eftirá!!:P
Fórum um kvöldið öll saman að borða á Andreas. Þar bondaði gunnhildur svona rosalega með andreas og var farin að vinna á barnum bara:) Fórum svo á stað sem heitir Spleded um kvöldið og dönsuðum mjöööög mikið..alveg uppá barborði og svona fyrir fría drykki ;)



tekið úr rúnkarahellinum

á Splended

3-4-5-6. dagur


Lágum mikið í sólbaði, fórum útað borða og fleira skemmtilegt..eitt kvöldið fórum við í Hania og þar var ég og lára alveg í ruglinu ;) fórum m.a annars á strippstað hehe :)
Á 6 degi fórum við rosa fínt útað borða og fengum alveg geðsjúkann mat..chicken mozarella mmmm:P

7. dagur

Fórum frekar snemma á ströndina...ákváðum að leigja okkur hjólabát á Gorgona ströndinni eða hvað sem hún hét:) birgðum okkur upp af bjór og fleira og hjóluðum útá haf þar sem manni leið bara eins og á milla snekkju...þangað til maður þurfti að hjóla;) neinei það var bara gaman.  Íris, helga lára, ásta og aníta leigðu sér líka hjólabát og nokkrir strákar jet ski.  Fyrst vorum við allar alveg geggjað æstar að hoppa í sjóinn en enduðum svo allar bara steinsofandi :) rosa gaman fyrir þá sem sigldu framhjá...8 gellur á bjóstunum;)





Svo kl 9 kom rúta að sækja mig og írisi mist og við vorum þær einu sem fóru heim:( alltaf gott að komast heim samt...

Heyrðu svo eru myndir frá laugardeginum líka komnar inn.  Byrjuðum að drekka heima hjá mér og fórum svo í útskriftarveislu hjá bróðir hans Hlyns og svo niðrí bæ....roosa skemmtilegt kvöld.  Allt einhverjar sjálfsmyndir af okkur þar sem við misstum okkur aðeins á klóstinu hjá hlyni ;)

vá langt blogg...það er svona þegar maður getur dundað sér við þetta í vinnunni ;)


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Dagsetning
15. mars 2010
Klukkan
Litli prinsinn okkar!! :D
Myndasíður
Myspace-in okkar
Leitarbox